Published on December 19, 2004 By Hebbi In Blogging
Búinn að vera á fullu að keyra út. Það er eins og íslendingar éti ekkert nema pítsur rétt fyrir jólin. Ég er sko búinn að fá upp íkok á þeim

Mamm er alltaf með sama böggið. Vill að ég flytji út og fari að finna mér eigið húsnæði eins og hún kalalr það. Hún er nú eitthvað klikk. Hversvegna ætti ág að vera að leigja fyrir 70 þúsund kall þegar ág get verið í herberginu hliðina á geymslunni frítt? Og notað svo geymsluna til að spila í. Hún var dálítið fúl þegar hún komst af því að ég og Frikki höfðum ekið öllu draslinu úr geymslunni niður í kjallara í Sorpu og innréttað geymsluna með risastóru borði til þess að spila á D&D og lan og svoleiðis stöff. Skil ekki hvað hún var að grenja yfir gömlu jólaskarauti, það er hægt að kaupa fullt af drasli í TIger til að skreyta með.

Annars var Vulgar, 13 levels worriorinn minn drepin í spili í gær. ég er helvíti fúll því að ég var búinn að spila hann í næstum eitt ár.


Comments
No one has commented on this article. Be the first!